Ađalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Do the snake, man!

31. maí 2007 klukkan 15:11
Jæja þá er maður kominn aftur frá Mallorca og orðinn hel-tanaður! Myndir frá ferðini munu sennilega birtast á Þessari síðu von bráðar. Þetta var magnað stuð! EN Ég nenni ekki að fjölyrða meira hér um ferðina.

Á meðan maður var í burtu myndaðist ný ríkisstjórn og Ungfrú Ísland 2007 var kjörin á Broadway (væntanlega). Annars er maður að flytja til Reykjavíkur á næstunni og spurningin því aðeins þessi: "á maður eftir að eiga heima á Serranos eða hvað?"

Meira nenni ég ekki að skrifa í bili, enda er ég latur og þunnur.

Leynilegt ástarsamband eđa Bölvađur 500kallinn?

15. maí 2007 klukkan 19:55
Svo maður haldi nú áfram að vera málefnalegur:

Nú er kosningarnar búnar og "sigurvegarar" að mati "spekinga" eru D-listi sjálfstæðisflokks og V-listi Vinstri grænna. En hvernig geta þessir tveir flokkar verið sigurvegarar? Jú, Sjálfstæðismenn héldu velli og Grænir bættu við sig alveg heljarinnar fylgi. "Silfur" Egill Helgason  talaði um "leynilegt ástarsamband" á milli V og D. Hann hélt því fram að þessir tveir flokkar ættu undarlega margt sameiginlegt og velti því fyrir sér hvort þetta yrði næsta ríkisstjórn. Framsókn fékk vægast sagt dapurlega kosningu, sem kætir mig gríðarlega, Jón Sigurðsson komst ekki einu sinni að og Siv Friðleifs rétt slapp. Þá er það spurningin hvora velur Geiri Harði, leynilegu hjákonufrillu sína Stonemask Jay eða einkonuskassið Johnny fivehundred??

Myndina hannaði ég í Arcsoft, sem fylgdi með myndavélinni minni...

Austantjaldshevítisviđbjóđurogandskoti!

11. maí 2007 klukkan 18:02
Big RedHvað í fjandanum?! Halló Hafnarfjörður! Eurovision eða Eastern-eurovision? Þvílíkt djöfulsins bull!

Lögin sem komust áfram í gær: Kellingin á bus-stop sem var að kafna úr leiðindum. Kellingin (lellan)  sem leit út eins og Kolli í gamla daga með saur-lag, Belja sem söng falskt og greinilega var ekki í formi, Gæinn frá Tyrklandi sem las upp úr símaskrá. "Uxar á fengitíma" eins Sigmar orðaði það, gjörsamlega hæfileikalaus grúbba sem einnig las úr símaskrá (Makedónía), Slóvenski hvalurinn sem öskraði eitthvað yfir teknó-óperu. Fimm-fræknir-hattar frá lettlandi.

Síðan voru lög eins og Sviss, Kípur, Pólland, Danmörk, Belgía, Ísland, Holland og Noregur með ágætis --> frábær lög sem náðu ekki áfram. Ég las á mbl.is að nú vill V-Evrópa fá tvær forkeppnir eina fyrir vestur og aðra fyrir austur og ég er alveg hjartanlega sammála því. Fjöldi landa er að hóta að hætta keppni sé þetta ekki tekið til athugunar.
 
Og víst að maður er að skíta yfir mannskapinn þá vill ég nota tækifærið og hvetja fólk til þess að kjósa EKKI helvítis framsóknarflokkinn. Þessar skoðanalausu, gráðugu hórur hafa setið nógu lengi í hásætinu. Dante sagði að heitustu pittir helvítis væru fráteknir fyrir þá sem ekki mynda sér skoðun. Framsókn... nýja heimilið ykkar bíður ykkar. Hversu óþolandi er þetta smáflokka-pungtak sem þeir beita á báða bóga, "gefið okkur þetta or else..." Þeir eru litlu tíkur Sjálfstæðismanna. Ég vill taka það fram að ég hef ekkert persónulega á móti xD, maður veit hvar maður hefur þá, og einnig er hæfileg frjálshyggja bara hressandi fyrir lýðinn. HÆFILEG! Please, ekki einkavæða spítalana eða virkja Gullfoss... okey?!

Sjálfur ætla ég að kjósa Samfó, bæði fyrir Smára J.J. og Róbert Marshall, hver veit? Kannski gerist eitthvað í samgöngumálum Eyjamanna... en hinn bóginn... þá er Árni auðvitað hinum meginn, þá er þetta kannski bara svona win/win dæmi hjá Eyjamönnum... vonandi segi ég bara. Því í sannleika sagt, þá stjórnar enginn veðrinu, hlutir kosta pening og Ísland á aldrei eftir að vinna í Eurovision.

Hvernig væri ef D væri bætt við S... DogS. Getur það gengið? Eða er það leftys vs. Rightys? VG, Samfó vs. Sjálfstæðó, framsókn, (frjálslyndir?)...

Og hey! Ekki kjósa Íslandshreyfinguna heldur... það er svo agalega væminn flokkur.

Smá Texas, smá öl, ekkert smá gaman...

05. maí 2007 klukkan 21:45
Ég vill hrósa skjá einum fyrir sýningar þeirra á Texas hold´em European Open á föstudagskvöldum. Ég hef þurft að vinna mikið á laugardögum undanfarið og því lítið um drykkju og slíkt á degi föstunnar... EN í staðinn glápir maður bara á smá Texas  Hold´em og lærir helling á því... ha, hvernig? Jú, í  hverjum þætti er einhver meistari með góðar ráðleggingar varðandi spilið fyrir áhorfendur, ekki þátttakendur. Kannski að maður tapi smá pening í Reykjavík þegar að maður flytur þangað en það er víst grimmt spilað af félögunum... en þangað til segi ég bara adios hombres.

Ógeđslega fyndiđ!

27. apríl 2007 klukkan 21:28
Maður hefur nú verið fórnarlamb ýmissa hrekkja í áfengisdauða, en þetta toppar allt saman:
http://www.youtube.com/watch?v=v4UI8-lRels

Humarvertíđ

25. apríl 2007 klukkan 18:40
Box sem við notumJæja, ég ætlaði að verða svaka virkur með "endurkomunni" en þá skall á líka þessi svaka humarvertíð! Brjálað að gera i Fiskvinnslu V.E. 

Einnig ætlaði ég að koma með málefnilegan pistil, annað hvort um kosti heilbrigðiskerfisins eða um þá félaga Wyatt Earp og Doc Holliday. En í staðinn ætla ég að koma með ómálefnalegan pistil um sjálfan mig... eins og algjör chump.

Ástæðan fyrir því af hverju ég borða ekki humar og reyndar hef aldrei smakkað hann er ekki sú að ég smakkaði það eitt sinn og fannst það vont né heldur vegna þess að ég þorði því aldrei. Neibb ástæðan er mun flóknari en það... sjáðu til, þegar ég var ungur drengur fengu mamma og pabbi stundum humar í hendur og var þá hátíð í bæ. Þau buðu oftast Ólöfu, mömmu hans Smára, í mat og Smára með. En þegar að snæða átti humarinn sögðu þau gömlu gjarnan: "jæja strákar, viljið þið ekki panta pizzu?" Og auðvitað vorum við alveg kampa-kátir því það var einnig sjaldgæfur matur á þessu heimili.

Mörgum árum síðar, kallinn kominn á þrítugsaldur og hefur enga löngun til þess að smakka humar, hugsanlega vegna þess að ég hef ekki hugmynd um hverju ég er að missa af...

Endurkoman

19. apríl 2007 klukkan 11:05
Í dag 19.apríl - Sumardaginn fyrsta og Ammmlisdaginn hans Grettis "fjallaljóns" - er viðeigandi að tilkynna endurkomu mína í netheiminn. Góðar stundir
Endur-koman

Ţreyttur fjandi

11. mars 2007 klukkan 13:38
Hæhó, ég er að vinna eins og mó þessa stundina og hef því lítið að blogga um í bili. En annars er ég að leita mér að vinnu í Reykjavík akkúrat núna, svo munum við Charlotte og Sigursteinn flytja þangað í sumar. Þau tvö fara á leikskólann Vesturborg, hún að vinna og hann að leika sér... eða öfugt ég man það ekki. Ég lofa líflegri síðu og heitum umræðum á næstunni.... svona um miðjan mars eða svo.

Colts vinna Superbowl XLI

05. febrúar 2007 klukkan 19:16

Tony Dungy og Peyton Manning
Indianapolis Colts unnu superbowl, eins og ég spáði...hó! Tony Dungy er fyrsti svarti þjálfarinn til að vinna superbowl, til hamingju með það Tony. Einnig er gaman að minnast á hversu oft Peyton Manning hefur komið sér og sínum mönnum í undanúrslit eða í superbowl án þess að fara alla leið, því er þetta verðskuldaður sigur fyrir kallinn. Chicago Bears áttu ótrúlega ekki skilið að sigra því leikstjórnandi þeirra Rex Grossmann eða That´s gross man! eins og ég kalla hann, átti ótrúlega slakan leik... fjöldi bananabolta og svo stundum gleymdi hann boltanum hjá línunni, magnað!

Colts náði forystunni af Chicago snemma leiks og hélt henni, keyrði niður klukkuna og Rex Grossman, QB hjá Bears, sá um að halda sókninni sinni á bekknum. 
 
Njalli vann veðmálið, hann spáði því að Colts myndi sigra með meira en 5 stigum ég spáði sigri undir 5 stigum. Hann á því von á kassa af Thor eða Faxe, til hamingju með það Nailor the Sailordude. Fleira var það ekki í NFL fréttum, góða nótt.

02. febrúar 2007 klukkan 23:32
Gaman að því. Mig langar svo fagna! Fá mér nokkra kalda vi commrades og hlusta á CCR, GCD og GNR... Það kemur að því seinna.

Annars eru unglingar bara að taka tryllinginn víðs vegar um Ísland því þeir fá ekki að spila World of Warcraft. Lögreglan er búin að þurfa að bregðast við og læti. Svo sögðu þeir í Game-Tíví að Kínverji hefði spilað í 3 sólahringa stanzlauzt og dáið vegna næringarskorts... Damn!
úúúú
Ég held að það sé betra að sleppa því að spila world of war-crap eins og Siggi Björn orðar það.

Heimspeki vikunnar

"Besta leiđin til ađ losa sig viđ óvini sína, er ađ gera ţá ađ vinum sínum"
-Abraham Lincoln